Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 668, 131. löggjafarþing 350. mál: Háskólinn á Akureyri (skrásetningargjald).
Lög nr. 135 22. desember 2004.

Lög um breytingu á lögum um Háskólann á Akureyri, nr. 40/1999, með síðari breytingum.


1. gr.

     Í stað orðanna „allt að 32.500 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: 45.000 kr. fyrir heilt skólaár.

2. gr.

     Lög þessi taka gildi 1. janúar 2005.

Samþykkt á Alþingi 10. desember 2004.